Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar




Neyðaraðstoð 2015
Mæðrastyrksnefnd Hafnarfjarðar veitir efnalitlum barnafjölskyldum aðstoð fyrir komandi jól 2015
Tekið er á móti umsóknum í Hraunseli, Flatahrauni 3 eingöngu dagana 19. og 23. nóvember kl. 16-19.
Krafist verður nýútprentaðrar staðgreiðsluskrár fyrir tekjur til og með október 2015 og búsetuvottorðs sem nálgast má frítt á Þjónustuskrifstofu Hafnarfjarðarbæjar á Strandgötu 6.
Rauði krossinn tekur á móti umsóknum á Strandgötu 24, 16. nóvember kl. 11-13.
Styrkir
Nefndin styrkir efnaminni fjölskyldur í Hafnarfirði með inneignarkortum í matvöruverslanir í bænum og vill gjarnan gleðja börn og unlinga sem þurfa á því að halda með jólagjöfum. Hægt er að leggja inn á reikning nefndarinnar, kaupa inneignarkort eða gefa jólagjafir. Allur stuðningur er vel þeginn.